leita



 

 

 
Friends of Heimur:
sunglasses
http://www.extratour.de
   


 
Skráið ykkur á póstlista
29/12/2009 | 19:52

Feðgarnir í Fjarðarkaupum – menn ársins 2009. Myndir

Feðgarnir í Fjarðarkaupum voru útnefndir menn ársins í viðskiptalífinu árið 2009 af dómnefnd Frjálsrar verslunar. Verðlaunin voru afhent af iðnaðarráðherra í veislu á Hótel Sögu 29.12. Myndir úr veilsunni sjást hér að neðan.

Feðgarnir í Fjarðarkaupum eru menn ársins 2009 í íslensku atvinnulífi, að mati Frjálsrar verslunar. Það eru þeir Sigurbergur Sveinsson og synir hans Sveinn og Gísli Þór. Þeir tóku við viðurkenningunni í fjölmennri veislu sem Frjáls verslun hélt þeim feðgum og fjölskyldum þeirra til heiðurs á Hótel Sögu.

Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra afhenti viðurkenningarnar. Gissur Páll Gissurarson tenor söng nokkur lög. Benedikt Jóhannesson, framkvæmdastjóri Heims, setti hátíðina og stýrði veislunni.

Í mati sínu lagði dómnefndin til grundvallar frumkvöðlastarf á sviði lágvöruverðsverslunar á Íslandi, langan og farsælan feril, hófsemi,
dugnað og útsjónarsemi sem gert hefur Fjarðarkaup að stöndugu og framúrskarandi  fyrirtæki.

Þeir hafa lagt áherslu á að reka trausta og góða matvöruverslun þar sem álagning er lág en þó þannig að allar vörur eru látnar standa undir sér í stað þess að gefa
með sumum en taka það aftur inn á öðrum.

Þeir hafa ekki farið í útrás, hvorki til höfuðborgarinnar né til útlanda.
Fjarðarkaup voru stofnuð fyrir 37 árum sem fyrsta lágvöruverðsverslun á Íslandi.

Fjarðarkaup skulda ekki krónu í langtímalánum og búa að því að þar hefur verið vel haldið á og hagnaði haldið inni í fyrirtækinu til að styrkja stoðir þess.

 
 
 
 


06. september | Hó, hó, ha, ha, ha (BJ)
Ef það er eitthvað sem ég er lítið gefinn fyrir er það hópefli. Orðið sjálft vekur hjá mér gæsahúð. Nánd við aðra finnst mér líka óþægileg. Ef einhver grípur í mig, ég tala ekki um vill faðma mig, þá hrekk ég undan. Ég geri kannski undantekningu með




07. september | The Ghost Writer
Það er mikil synd að einkalíf Roman Polanski, sem hefur verið þyrnum stráð svo ekki sé meira sagt, skuli alltaf gnæfa yfir afrek hans á listasviðinu, sérstaklega nú í kjölfar handtöku hans í Sviss fyrir um ári síðan. Hefur handtakan og eftirmálin gert það að verkum að nýjasta kvikmynd hans





 




© Allur rettur askilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. Borgartúni 23 105 Reykjavik S. 512 7575 Fax. 561 8646 heimur@heimur.is