Afmælisdagurinn byrjaði með tveimur draumadísum. Það var ekki amalegt að fá gjafir frá tveimur Vigdísum í morgunsárið. Vigdís litla gaf mér mynd eftir sig með langri skýringu, meira að segja af mér og ömmu hennar og nöfnu, nýkomnum úr flugvél. Ég hefði auðvitað þekkt okkur án skýringa, sérstaklega leynir svipurinn á Vigdísi ömmu sér ekki.