leita

ELDRI PISTLAR

Gaman er að sjá aftur álitsgjafana, sem komið hafa úr felum eftir kosningar. Seðlabanki, vinnumarkaðssamtök og fleiri eru nú teknir til við að vara við skattalækkunum á komandi árum. Fyrir kosningar þögðu þeir ýmist eða töluðu svo óskýrt að fáir skildu þá. Núna segir Seðlabankinn að brýnt sé að auknum

Þegar ég bjó í Bandaríkjunum var í tísku að andæfa yfirvöldum í smáu sem stóru. Undirskriftalistar gengu um lögleiðingu á marijúana, bann við blautbolakeppni því að hún væri dæmi um kvenfyrirlitningu, að frí væri gefið á dánardegi Maós formanns, krafa um að blautbolakeppni væri leyfð því að bann gegn

Gunnar Gunnarsson og Þórbergur voru gerólíkir rithöfundar sem mikið var hampað á sinni tíð. Nú hefur Halldór Guðmundsson komið þeim saman í bók og Mogginn auglýsir hana með gömlum kjaftasögum og skammast svo yfir í Staksteinum. En bók Halldórs er miklu merkilegri en þær sögur sem Mogginn notar úr


PISTLAR

11/12/2003 | 00:00

Bakkus og heilög Barbara (JGH)

Ég veit ekki hvað þetta er með virkjanir og hálendið. Ómari Ragnarssyni sjónvarpsfréttamanni hefur verið hótað brottrekstri úr starfi vegna umfjöllunar hans um hálendið. Þá hefur honum líka verið hótað því að komið verði á kreik „óþægilegum kjaftasögum" um hann. Ég sem hélt að allir vissu allt um Ómar. Hálendingarnir við Kárahnjúka veita okkur hins vegar sannar skemmtisögur. Og það eru engar kjaftasögur. Nýjasti brandarinn er um einhvern „gáttaþef" sem stökkva mun upp í jarðýtur og veghefla í leit að Bakkusi. Þetta verður hann að gera óreglulega því það er engin regla á óreglunni þarna fyrir austan.

Ómar Ragnarsson er einhver vinsælasti maður þjóðarinnar – og hefur verið lengi. Þess vegna finnst mér ekki hafi verið gert nægilega mikið úr „lítilli frétt" sem birtist um Ómar sl. þriðjudag þar sem hann staðfesti að sér hefði verið hótað brottrekstri úr starfi fréttamanns vegna umfjöllunar hans um virkjanir og hálendið. Upphaf þessa máls má rekja til greinar sem birtist í breska blaðinu The Guardian. Ómar staðfestir hins vegar frásögn blaðsins og segir að hótanir í sinn garð hafi átt sér stað þannig að menn hafi komið til sín undir merkjum vináttu og tekið fram að um trúnaðarsamtöl væri að ræða. Hann vísar til blaðamannaheiðurs síns og segist ekki geta upplýst hverjir hafi viljað koma á sig höggi. Hann bætir við að hann búi í leiguíbúð og að engin tök séu á að koma höggi á sig fjárhagslega. Þá segir hann að sér hafi verið hótað með því að komið yrði á kreik „óþægilegum kjaftasögum" um sig. „Nú síðast var mér hótað því að það færu á kreik sögur um að ég væri á launum hjá hinum eða þessum erlendis þar sem enginn geti gert svona þætti án þess að fá til þess fjármagn."

Fjölmiðlar hefðu mátt gera meira úr þessu máli því margir liggja núna undir grun. Hvaða virkjunarsinnar hafa verið að hóta Ómari? Eru þeir Austfirðingar? Eru þeir samstarfsmenn Ómars innan Ríkisútvarpsins? Eru þetta menn með „vinstri- eða hægrislagsíðu" þegar þeir ganga um gólf? Raunar hélt ég að ekki væri hægt að breiða út kjaftasögur um Ómar því allir vissu allt um hann. Hann hefur verið „eign þjóðarinnar" í áratugi og ekki getað hreyft sig án þess að það spyrðist út – eða hann gefið það út. Eitt er víst; Kynni okkar af landi og þjóð hafa verið ómetanleg í gegnum Ómar og þjóðin stendur með honum.

Vinstri- og hægrislagsíða við Kárahnjúka

Það þarf hins vegar ekki að breiða út neinar kjaftasögur um þá við Kárahnjúka. Þetta svæði er að verða eitt stórt gleðisvæði í hugum fólks þótt margir líti frekar á það sem krimmanýlendu. Sögurnar eru margar, bæði broslegar og tregafullar. Núna eru það sjússamælarnir og áfengismælarnir sem eru á frontinum. Fyrst er mælt ofan í menn og síðan hvað sé mikið í blóðinu. Fyrir austan eru þeir bæði með „vinstri- og hægrislagsíðu" en ekki bara „vinstrislagsíðu" eins og hjá Markúsi í Efstaleitinu.

Rennum hratt yfir fréttaflutninginn. Fyrst voru það skórnir. Síðan voru það 300 pörin af ullarsokkum sem send voru með hraði austur. Næst birtist frétt um að starfsmaður Impregilo hefði verið rekinn vegna þess að hann réðst á samstarfsmann sinn með flösku og skar hann á höfði og í andliti. Þá var komið að Bakkusi og heilagri Barböru fyrir nákvæmlega viku sem endaði með óreglu fram á nótt. Daginn eftir voru tveir starfsmenn Impregilo á veghefli og jarðýtu teknir undir áhrifum áfengis á Fljótsdalsheiði. Þeir voru svolítið skakkir undir stýri. Við því á að bregðast með skyndikönnunum þar sem einhver „gáttaþefur" stekkur öllum að óvörum upp í ýtur, hefla og flutningadreka á svæðinu vopnaður áfengismæli. Í den voru menn látnir blása í blöðru í gríð og erg, en tækninni fleygir fram. Loks eru það fréttirnar um að sótt hafi verið um vínveitingaleyfi í klúbbhúsi á svæðinu. Það á að opna bar. Hið kómíska er að ævinlega skuli tekið fram með afsökunartón að þeir sem séu á vakt muni alls ekki fá sér neðan í því og sitja að sumbli í klúbbhúsinu heldur eigi þetta að vera sivilíserað.

Það er sem ég sjái lögguna í Reykjavík stökkva upp í stórvirkar vinnuvélar, sem ekki má aka um stræti borgarinnar nema eftir að rökkva tekur og eldsnemma á morgnana, og láta harðsnúnar vinnuhetjur undir stýri blása í blöðrur. Eru þó skemmtistaðir í Reykjavík opnir fram eftir á kvöldin og eitthvað fram á nótt. Hvað með önnur vinnusvæði á landinu? Eiga menn von á því að þessi faraldur breiðist út og teknar verði stikkprufur af fólki daginn eftir vinnupartý með heilagri Barböru? Er það ný bóla að það sé slen í mönnum „the day after"?

Ég veit ekki hvernig ég á að orða þetta, en það er eins og það hafi ekki verið reist virkjun áður á Íslandi, slík er útreiðin sem þeir fá þarna við Kárahnjúka í fréttum. Auðvitað hefur maður gaman af þessum fréttum og þær fóðra líka hina ágætu Spaugstofumenn reglulega, en þeir fóru á kostum í síðasta þætti þegar þeir fylgdust með Ólafi Ragnari og Dorrit bregða sér í bæjarferð til Reykjavíkur, „borg eymdarinnar", að mati forsetans. Vel gert spaugarar.

Ekki veit ég hvað forsetinn mun nefna það þegar hann heldur í austurátt og bregður sér á Kárahnjúkasvæðið. Ólafur er hins vegar þekktur bindindismaður og þarf því ekkert að óttast þótt maðurinn með mælinn verði á vegi hans þegar hann leiðir Dorrit inn í nýja klúbbhúsið.

Jón G. Hauksson





© Allur rettur askilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. Borgartúni 23 105 Reykjavik S. 512 7575 Fax. 561 8646 heimur@heimur.is