leita

ELDRI PISTLAR

01. september | Útstrikanir (BJ)
Pistlinum hefur borist bréf. Með birtingu þess hér á Netinu er þessu máli lokið. Ég stend að sjálfsögðu við dagbókarfærslu mína en hún fjallaði um allt annan Davíð, Matthías og Jón Baldvin en um er talað í bréfinu. Komdu sæll, Benedikt. Dagbækur þínar eru um

Nú er komið sumar og allir eru glaðir. Reyndar ekki ríkislögreglustjórinn sem reynir að spilla gleði almennings með því að birta einhverjar kærur, sem eru svo alls ekkert birtar. Ég er ánægður með að sumir fjölmiðlar skuli ekki láta svona fýlupúka raska ró sinni. DV sem er sómakært blað sem

Þjóðin er í klemmu um næstu helgi. Trúin á pólitíkusa hefur aldrei verið eins lítil og hún fer minnkandi ef eitthvað er. Í hugum fólks brugðust þeir meira og minna allir í bankahruninu. Engu að síður er ekki nema vika þangað til hún gengur að kjörborðinu til að kjósa


PISTLAR

28/09/2007 | 18:24

Turnar í tísku (JGH)

Ég er sammála Gunnari I. Birgissyni, bæjarstjóra í Kópavogi, sem heldur upp á 60 ára afmæli sitt um þessa helgi, að skýjakljúfar eru það sem koma skal. Þeir eru núna í tísku og þeir eru góð nýting á landinu. Turninn við Smáratorg í Kópavogi, sem Jákup Jacobsen í Rúmfatalagernum er að reisa, verður 78 metrar á hæð og 20 hæðir. Að sjálfsögðu óskum við gamlir Kópavogsbúar bæjarstjóranum í Kópavogi til hamingju með stórafmælið þessa helgi. Hann og Geirdal hafa gert kraftaverk. Bærinn er örlítið breyttur frá því við Hvammarar vorum og hétum –  hjóluðum á holóttum vegunum –  og urðum fyrir aðkasti vina og skólafélaga vegna gatnakerfis okkar. En við „stífluðum ævinlega götur“ í miklum rigningum.

Það er slegist um húsnæðið í turninum við Smáratorgið og ekki verður annað skilið en að allir vilji vera í turninum. Deloitte verður þar með umfangsmikla starfsemi á 5 þúsund fermetrum og á sex hæðum. Skýjaklúfarnir eru því engar fjármálalegar skýjaborgir, eins og einhver kynni að halda. Þá er að komast í tísku að efnamenn kjósi að búa í rándýrum þakíbúðum hárra fjölbýlishúsa. Þetta er því eins og í körfuboltanum; það snýst núna allt um hæðina – þótt hún sé auðvitað rammasta flatneskja í hugum þeirra sem vilja lágreist hús.

Turninn hans Jákups í Rúmfatalagernum í Kópavogi hefur rokið upp eins og hraðvaxta unglingur. Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri tók fyrstu skóflustunguna í lok febrúar á síðasta ári og hófust framkvæmdir skömmu síðar. Þeim lýkur í byrjun næsta árs, eftir örfáa mánuði. Þá verður turninn orðinn fullra 78 metra á hæð og þar með hæsta bygging landsins. Til samanburðar má nefna að hæð Hallgrímskirkju er 74 metrar. En hugsið ykkur muninn á byggingarhraðanum. Hallgrímskirkja var nokkra áratugi í byggingu og kirkjuturninn var – ef ég man þetta rétt – kominn með steypuskemmdir áður en stillansarnir voru rifnir utan af  honum. Turninn hans Jákups hefur hins vegar risið upp á tveimur árum.

Það eru fleiri skýjaklúfar að rísa. Við Borgartúnið, þ.e. Höfðatorg, er að rísa 70 metra hár turn og mun hann setja veglegan svip á Borgartúnið sem núna gengur undir nafninu Wall Street. Skrifstofur Frjálsrar verslunar eru í Borgartúninu og ég hefði viljað sjá turninn hans Jákups tígulegan hér við götuna.

Nokkur hundruð metrum frá turninum við Smáratorg er að rísa 30 hæða og 115 metra hár skýjakljúfur við Smáralind. Það verða því turnarnir tveir í Smáranum. Þeir eru samt ekki tvíburaturnar. Þá eru uppi hugmyndir um að reisa 150 metra háan turn í Glaðheimum – en þar er núna hesthúsahverfi Kópavogs sem mun „tölta í burtu“ á næstu árum.

Enn og aftur virðist anda svolítið köldu á milli bæjarstjóranna í Kópavogi og Garðabæ – því Gunnar Einarsson sendi nafna sínum Birgissyni pillu í Blaðinu á dögunum. Þar sagði hann að svo fremi sem að byggingarnar „vörpuðu ekki skugga á Garðabæ þá gæti hann lítið sagt við háhýsastefnu Kópavogsbæjar“. Takið eftir: Varpa skugga á Garðabæ. Hvað er eiginlega um að vera?

Það þarf fleiri turna og það þarf fleiri skýjakljúfa. En það þarf auðvitað að bretta almennilega upp ermarnar við byggingu Sundabrautar, en Sundabrúin er einn áfangi þeirrar leiðar. Þar mætti vera Tower of bridge. Sömuleiðis þarf að setja fleiri vegi í stokka og drífa í því – sem og smokra nokkrum brautum í jarðgöng á höfuðborgarsvæðinu.

Turnar eru í tísku – enda eru skýjaklúfar engar skýjaborgir.

Jón G. Hauksson.
jgh@heimur.is

Share




© Allur rettur askilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. Borgartúni 23 105 Reykjavik S. 512 7575 Fax. 561 8646 heimur@heimur.is