
ELDRI PISTLAR
PISTLAR
Nú er komið sumar og allir eru glaðir. Reyndar ekki ríkislögreglustjórinn sem reynir að spilla gleði almennings með því að birta einhverjar kærur, sem eru svo alls ekkert birtar. Ég er ánægður með að sumir fjölmiðlar skuli ekki láta svona fýlupúka raska ró sinni. DV sem er sómakært blað sem hefur lítinn áhuga á dylgjum af þessu tagi lét þessar hulduákærur fram hjá sér fara. Eiríkur, Jónas og rithöfundurinn mega ekkert vera að því að segja frá svona smámálum, þeir eru að semja siðareglur fyrir Hér og nú. Jónas Kristjánsson er líka með reynslu í að þegja yfir ósmekklegum málum. Blaðamenn sem fengu þjálfun hjá þessum mikla reynslubolta muna enn svar hans, þegar einn þeirra ætlaði haft upp á „síðustu farþegunum með Arnarflugi“ og vildi skrifa um þá grein. Þá sagði Jónas:„Þetta er ekki fyndið.“
Það er gaman að heyra frá Jónatan Þórmundssyni aftur. Ég man ekki eftir að hafa heyrt frá honum síðan hann tryggði að engir fengju þunga dóma í Hafskipsmálinu á sínum tíma. Og ekki var hann trúverðugur þessi Sullenberger, eða hvað hann nú heitir sá ágæti maður, sem sagðist ekki hafa haft skoðun á neinu undanfarin 20 ár. Það var eins og flesta grunaði, að málið væri þrælpólitískt, runnið undan rifjum einhvers framsóknarmanns. En ef þetta verður til þess að athafnamenn verða að hverfa frá stórdíl í Bretlandi, þá fer gamanið að kárna. Þá verður ríkinu stefnt fyrir tugi milljarða. Nú er farið að leka því í fjölmiðla hvað er ekki í ákærunum og ef því verður haldið áfram til 17. ágúst verður hægt að finna hvað í þeim stendur með útilokunaraðferðinni. Það er augljóst að þessi leki kemur frá opinberum aðilum og hlýtur að kalla á lögsókn.
Yfir í allt aðra sálma. Ég var í Amsterdam um daginn á fundi. Það er ekki í frásögur færandi en þar var bandarískur maður sem fór að segja okkur frá uppvaxtarárum sínum í New York. Þá sagðist hann oft hafa hitt útlendinga sem voru á leið í miðbæinn og spurðu vegar. „Þá sagði ég þeim að fara beint upp í neðanjarðarlestina, Áttuna, sem fór beint upp á 130sta stræti. Og þegar þeir komu út voru þeir komnir inn í svartasta Harlem. Ég efast um að nokkur þeirra hafi komið lifandi tilbaka.“ Svo hló hann rosalega, en af einhverjum ástæðum hlógu ekki allir. Sumt fólk hefur enga kímnigáfu.
NÝLEGIR PISTLAR