leita

ELDRI PISTLAR

Stundum er ég áhrifagjarn fram úr hófi. Það þykir víst ekki kostur að vera allt of þrjóskur en ég held að það sé stundum best. Ég var búinn að ákveða að kaupa ekki „nýju“ bítlaplötuna Love . Þar hefur sonur Georgs Martins tekið góðu gömlu lögin og blandað þeim

Málarinn Gauguin var um tíma félagi málarans heimsfræga Vincents Van Goghs í borginni Alres í Frakklandi. Hann varð sem kunnugt er vitskertur, skar af sér eyrað og fyrirfór sér á endanum. Gauguin segir frá síðustu dögum sínum á svæðinu í bókinni Berorðar skýrslur Gauguins sem mér áskotnaðist fyrir skömmu. Kíkjum

11. desember | Upplifun í Salnum (BJ)
Ég fór á tónleika á föstudags- kvöld og á erfitt með að lýsa upplifuninni án þess að verða væminn. Ég fór á tónleika söngkonunnar Inese Galante í Salnum. Þarna var á ferðinni einhver besta sópran söngkona samtímans og hún söng hverja söngperluna á fætur annarri. Jónas Ingimundarson lék undir


PISTLAR

27/11/2009 | 16:57

Magnús í Eyjum (JGH)

Magnús Kristinsson, útgerðarmaður í Eyjum, sendir frá sér tilkynningu vegna sölu á Toyota á Íslandi þar sem hann skýtur á Landsbankann. „Fyrir áeggjan stjórnenda Landsbankans tókst ég á hendur miklar skuldbindingar til að varna því að Gnúpur yrði gjaldþrota í lok árs 2007. Jafnframt dróst ég til að verða stór hluthafi í Landsbankanum.“

Þetta er athyglisvert hjá Magnúsi. Hann verður ekki skilinn á annan hátt en að bankinn hafi sótt á hann til að fjárfesta fremur en að hann hafi fallið fyrir viðskiptahugmyndum og leitað til bankans um að fjármagna þær. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem fjárfestar orða þetta með svipuðum hætti – en þó ekki opinberlega.

Magnús gefur í skyn að bankinn hafi legið í honum að kaupa Toyota-umboðið, Dominos, Sólningu og fleiri félög. Hann treysti bankanum; þetta gat ekki klikkað. Meira til: „Jafnframt dróst ég til að verða stór hluthafi í Landsbankanum.“ Það er svolítill sorrý-tónn í þessu, allt öðrum að kenna, svona svipað og hjá þeim þúsundum Íslendinga sem afsöluðu sér sjálfstæðinu og sjálfstæðri hugsun þegar þeir segjast ekki hafa haft hugmynd um hvers eðlis peningamarkaðsreikningar bankanna voru þegar bankarnir lágu í þeim að setja fé inn á þessa reikninga sem sparibækur væru, en bara með miklu hærri vöxtum.

Það breytir því ekki að ég staldra við orð Magnúsar. Hann er í raun að segja að bankarnir hafi sett upp lista yfir stærstu og ríkustu fjárfesta landsins; svonefnda listamenn. Bankarnir hafi sagt sem svo: „Strákar, hverjir eiga peninga í þessu landi? Hringjum í þá og pökkum inn dílum fyrir þá.“ Enda var það svo að bankarnir urðu „hreyfiaflið í þjóðfélaginu“ og tóku snúning á hverju einasta einkafyrirtæki í landinu. Það var ekkert heilagt, slík var græðgin, enda fengu þeir fúlgur fyrir að selja fyrirtækin og fjármagna kaup, samruna og yfirtökur.

Hver man ekki eftir fréttunum þegar farið var með heilu flugvélafarmana af fjárfestum til Lúxemborgar til að gera sér glaðan dag með þeim. Kostnaður? Nei, bankarnir tóku snúning á fjárfestunum þegar heim var komið. Otuðu að þeim fyrirtækjum, smáum sem stórum, og pökkuðu inn dílum. Kauptu þetta fyrirtæki, við fjármögnum allan pakkann, þetta er skothelt, þú þarft ekki að hafa neinar áhyggjur.

Orð Magnúsar í Morgunblaðinu verða heldur ekki skilin öðru vísi en að bankarnir séu svolítið skitsó. Fyrir hrun lágu starfsmenn bankanna í mönnum að kaupa fyrirtæki svo bankarnir gætu fjármagnað og náð sér í þjónustutekjur. Þeir lofuðu gulli og grænum skógum – menn voru að fara mikils á mis ef þeir stukku ekki á tækifærin. Eftir hrun eru starfsmenn bankanna – oft sama fólkið og lá í mönnum fyrir hrun – hringjandi daginn út og inn í þá sem tóku lánin og keyptu fyrirtækin fyrir áeggjan þeirra. Fyrir hrun: „Taktu lánið, því fylgir engin áhætta.“ Eftir hrun: „Viltu borga lánið eins og skot; þú ert með allt niður um þig og punktstaðan á veðinu er búið.“

Magnús skaut á Landsbankann og Toyota-umboðið er til sölu. Selja hvað? Hver ætlar að kaupa Toyota-umboðið þegar Toyota International ræður því hver sé umboðsmaður á Íslandi og vill alls ekki að bankinn taki umboðið yfir. Það er nú meiri eignin að kaupa heildsölu sem hægt er að taka af manni með einni hringingu frá Japan.

Í hverja ætlar bankinn að hringja núna og bjóða góðan díl og bíl? Hringið, við erum ekki við símann núna!

Jón G. Hauksson

jgh@heimur.is


 





© Allur rettur askilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. Borgartúni 23 105 Reykjavik S. 512 7575 Fax. 561 8646 heimur@heimur.is