leita

ELDRI PISTLAR

ÉG HEF SAGT þessa sögu áður og ætla að segja hana aftur. Fyrir nokkrum árum var ég að ræða launamál íslenskra forstjóra í hádegisfréttum ríkisútvarpsins. Þar sagði ég fullum fetum að mér þættu 60 milljóna króna laun á ári (5 milljónir á mánuði) há laun og bætti við þessu

01. mars | Tímaflakk (BJ)
Kreppan hefur ýmsar hliðar. Utanlandsferðir eru orðnar svo dýrar að maður vill helst halda sig heima. Við vorum samt sammála um það hjónin að það væri eiginlega ekki hægt að binda sig þannig. Svo að við ákváðum að það væri svosem í lagi að fara eina og eina ferð,

26. október | Geir og Hjörtur (JGH)
„Þú hefur aldrei verið smámunasamur þegar kemur að sannleikanum séra Hjörtur minn,“ sagði séra Geir Waage í Reykholti þegar hann tókst á við séra Hjört Magna Jóhannsson í Fríkirkjunni í Kastljósi um nýju Biblíuna. Þeir voru að karpa um breytt og nútímalegra málfar í bókinni helgu. Það færi hins


PISTLAR

11/12/2009 | 17:32

Már og krónan (JGH)

Már Guðmundsson seðla- bankastjóri segir að áratugi geti tekið fyrir krónuna að ná aftur því meðalgengi sem verið hefur undanfarin tuttugu ár og öllum megi vera ljóst að krónan verði áfram veik í einhverjum skilningi. Samkvæmt þessu gerir Már ekki ráð fyrir því að evra verði tekin upp á Íslandi í náinni framtíð. Aðrir gætu túlkað orð hans sem áróður Samfylkingar, þ.e. að nauðsynlegt sé að taka upp evru fyrst krónan nái sér ekki á strik „í áratugi“ - já en á hvaða skiptigengi takk fyrir?

Annars er fróðlegt að fylgjast með spekúlasjónum Seðlabankans um gengi krónunnar; það er eins og það skiljist ekki að í grunninn endurspeglar krónan styrkleika íslensks atvinnulífs. Veikt atvinnulíf merkir veika krónu. Sterkt atvinnulíf sterka krónu. Már seðlabankastjóri er því með öðrum orðum að segja að það geti tekið áratugi fyrir íslenskt atvinnulíf að ná fyrri styrk.

Sterkt atvinnulíf er forsenda fyrir því að við komumst inn í myntbandalag Evrópusambandsins sem og auðvitað að vera í Evrópusambandinu. Velta má því fyrir sér hvort Már sé að blása ESB og evruna af þegar hann ræðir um krónuna áfram í áratugi; að draumurinn sé úti. Allir vita að við eigum langt í land með að taka til heima hjá okkur. Nýjustu fréttir eru svo um að hugsanlega þurfi Írland og Grikkland að segja sig úr ESB og myntbandalaginu fyrir árslok 2010 því efnahagur beggja er of bágborinn. Raunar væri efnahagur Íra enn verri ef þeir hefðu ekki tekið upp evru – eða svo hafa þeir sjálfir sagt. En það er önnur saga.

Ég ræddi um forsetann og fyrirvarana í síðasta pistli mínum hér á heimur.is Forsetinn samþykkti Icesave í byrjun september eingöngu út af þeim fyrirvörum sem voru í lögunum. Hann tók það sérstaklega fram í yfirlýsingu. Bretar og Hollendingar hafa hlegið að þessum fyrirvörum og þess vegna er ríkisstjórn Breta og Hollendinga, þ.e. ríkisstjórn Jóhönnu, að troða í gegn nýjum Icesave lögum án fyrirvaranna. Ef forsetinn væri maður prinsippa gætti hann þess sérstaklega að vera á landinu til að synja nýjum fyrirvaralausum Icesave-lögum, en hann er sagður á leið til útlanda á örlagastundu. Á meðan verður sá fjórtándi, Skattaþefur, í aksjón.

Forsetinn segist ekki tjá sig um málið en kosningastjóri hans og frændi hefur talað - og lagt línuna; Sigurður G. Guðjónsson. Hann er sá fimmtándi og segir að forsetinn eigi alls ekki að synja Icesave og skera þar með Sjálfstæðisflokkinn úr snörunni, eins og hann nefnir það. Í þessu felst að Sigurði G. er nokk sama um þjóðina; hann sér enga ástæða til að skera þjóðina úr snöru Icesave. Þjóðinni er fórnað til að koma ímynduðu höggi á Sjálfstæðisflokkinn. Hvað er ein þjóð á milli þeirra vina, forsetans og Sigurðar G.  Flestir telja að Ólafur Ragnar finni upp á einhverri skringilegri afsökun við að samþykkja Icesave og flytji um það klukkutímaræðu á Bessastöðum í beinni útsendingu.

Samkvæmt nýrri könnun Viðskiptablaðsins kemur fram að 70% Íslendinga vilja að forsetinn synji nýjum og fyrirvaralausum Icesave-samningi. Þess utan eru núna hátt í 40 þúsund manns búnir að skrá sig á indefence.is og biðja forsetann um að synja Icesave. Það er mun meiri gjá núna á milli þings og þjóðar en var í fjölmiðlamálinu.

Sá orðrómur hefur verið uppi í nokkra mánuði að það hljóti að vera eitthvert leynilegt loforð við Evrópusambandið um að ef  Íslendingar samþykki Icesave þá sjái Evrópusambandið síðar meir um að borga Icesave brúsann. Ella gæti Steingrímur J. ekki verið svona áfjáður í að setja Icesave skuldabaggann á þjóðina.

Ómar Valdimarsson skrifar um þetta og segir að Íslendingar muni aldrei borga krónu af þessum lánum og vöxtum, né heldur verði til þess ætlast. Orðrétt: „Að stjórnvöld á Íslandi, í Hollandi og í Bretlandi, sem og stjórnendur Evrópusambandsins, séu öll komin á sömu skoðun um IceSave: Íslendingar munu aldrei borga krónu af þessum lánum, né heldur verður til þess ætlast.“ Þetta segist Ómar hafa eftir „áreiðanlegu fólki“ innanlands og utan.

Ekki er þetta trúverðugt hjá Ómari og hann segist hafa orðið röndóttur í framan þegar hann heyrði þetta fyrst. Ómar segir okkur ekki hvað Evrópusambandið vilji fá í staðinn. Varla er sambandið orðið svona gjafmilt? Það á eftir að semja um fiskinn og fiskveiðistjórnunina, eða er það ekki?

Þrátt fyrir að bylgja fari um bloggheim út af pistli Ómars um Icesave-trikkið þá er saga vikunnar auðvitað að þau Guðrún Erlendsdóttir og Pétur Kr. Hafstein, fyrrverandi hæstaréttadómarar, hafi fyrst heyrt það í fréttum, að þau ættu að leggja mat á, hvort stjórnarskráin yrði brotin, ef Icesave-frumvarp Steingríms J. næði fram að ganga.

Fram kemur í Fréttablaðinu að þau hafi bæði hafnað málaleitaninni sem var borin fram eftir að „þetta var helst í fréttum“ var flutt í útvarpinu. Guðrún sagði hins vegar við blaðið að aldrei hefði komið til greina af sinni hálfu að taka verkið að sér. „Ég hafði aldrei heyrt neitt um þetta fyrr en ég heyrði fréttir í útvarpinu og hafði ekki hugsað mér að taka þetta að mér. Þetta er ekki hrist fram úr erminni,“ sagði Guðrún.

Vitleysan er mikil og víða - og hún er ekki öll eins.

Jón G. Hauksson
jgh@heimur.is





© Allur rettur askilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. Borgartúni 23 105 Reykjavik S. 512 7575 Fax. 561 8646 heimur@heimur.is