leita

ELDRI PISTLAR

Ég geri ráð fyrir að Bjarni Benediktsson verði kosinn nýr leiðtogi Sjálfstæðis- flokksins um helgina. En hans bíður tröllvaxið verkefni; að byggja flokkinn upp og auka vinsældir hans í mjög svo stuttri kosningabaráttu. Flokkurinn verður helst að fá 35% fylgi í komandi Alþingiskosningum svo Bjarni tryggi sig í sessi

Magnus Mills er enskur rithöfundur sem skrifar skrítnar bækur. Hann mun hafa verið strætisvagnastjóri í London þangað til hann fór að skrifa bækur. Nýjasta bók hans heitir Kerfið til að tryggja fulla atvinnu , en þar segir frá flokki sendibílstjóra sem aka fram og aftur milli miðstöðva með farm. Í

Davíð Oddsson beitti sinni frægu smjörklípu- aðferð þegar hann sagði að Seðlabankinn hefði haft vísbendingar um að hugsanlega hefðu einhverjir haft meiri áhrif á gengi krónunnar að undanförnu en eðililegt gæti talist. Hann sagði að um hefði verið að ræða aðila sem hefðu ekki átt að stunda slíkar gjörðir.


PISTLAR

22/01/2010 | 17:57

Mótmælendur ákærðir (JGH)

Í morgunkaffinu heima var ég spurður að því hvað mér þætti um að mótmælendur, sem ruddust inn í Alþingishúsið í Búsáhaldabyltingunni og brutu af sér, hefðu verið ákærðir. Ég sagði sem var að ég væri ekki klár á því hvernig ætti að taka á þessu máli. Ákæran væri réttmæt út frá laganna bókstaf; þarna hefði fólk brotið af sér með því að ráðast inn á sjálft Alþingi. Einn þingvörður hefði slasast alvarlega í átökunum og hefði hlotið örorku. En svona ákæra gæti hins vegar mjög auðveldlega hleypt illu blóði í fólk og orðið upphafið að nýjum blóðugum mótmælum við Alþingishúsið og enn meiri skaða, slagsmálum og meiðslum. Kveikiþráðurinn væri stuttur hjá þjóðinni sem vildi eflaust sjá aðra á bak við lás og slá eftir hrunið en níu mótmælendur sem gætu auk þess orðið að einhvers konar hetjum fengju þeir dóm. Það væri oft stutt á milli þess að vera skúrkur eða hetja. Ég fékk fljótt að heyra að það væri ekki mikið á þessu svari að græða.

Eitthvað segir mér að meirihluti þjóðarinnar sé á móti því að mótmælendurnir níu séu ákærðir – þótt ég hafi ekki séð neina könnun um það. Það eru líka margir hlynntir því að ákæra og telja að það eigi ekki að lýðast að æstur múgurinn ráðist inn í Alþingishúsið með þeim hætti sem gert var. Sömuleiðis hefur lögreglan ævinlega mælst með mikið traust í könnunum, t.d. mun meira traust en fjölmiðlar.

Þessar ákærur fara illa í þingmenn Hreyfingarinnar sem segja að mótmælendur hafi verið „að sinna borgaralegri skyldu sinni“. Það er býsna djúpt í árinni tekið og ekki hægt að taka undir það. Ríkissaksóknari segist ekki hafa heimild til að láta þetta mál niður falla þar sem sjö manns hafi særst í átökunum, m.a. lögreglumenn og þingvörður. Málið hafi komið til sín eftir rannsókn lögreglu á kæru skrifstofustjóra Alþingis. Það hafi verið Alþingi sem ákvað að kæra samkvæmt 100. grein hegningarlaga sem kveður á um eins árs lágmarksfangelsisvist, verði hin ákærðu dæmd sek.

Þeir, sem núna eru ákærðir, ruddust inn í Alþingishúsið í krafti múgsefjunnar og hjarðhegðunnar. Þeir töldu það í góðu lagi og voru frekar að leika hetjur, að eigin mati, en skúrka. Laugardag eftir laugardag höfðu þúsundir manna á Austurvelli fundist það allt í lagi að örfáir í hópnum grýttu eggjum og öðrum matvælum í Alþingishúsið og vanvirt lýðveldið – og það nánast í beinni útsendingu sjónvarpsvéla. Þögn þúsunda mótmælenda á Austurvelli var sama og samþykki. Það var líka samþykki fyrir meiri hörku. Alþingishúsið er ekki einhver bygging úti í bæ, það er tákn sjálfstæðis, þingræðis og lýðveldis á Íslandi. Öllum á að vera annt um þetta sögufræga og tignarlega hús. Það á ekki að þykja allt í lagi að ryðjast þar inn.

Mótmælin á Austurvelli fengu nýja vigt þegar millistéttin tók að mæta. Þetta byrjaði allt sem fámenn mótmæli Radda fólksins eftir hádegi á laugardögum haustið 2008. Hörður Torfason tónlistarmaður var þar í fararbroddi. Fljótlega tók að fjölga við Austurvöllinn á laugardögum og það fór ekki á milli mála að loft varð læviblandnara með hverri helginni sem leið. Hin sögulegu mótmæli, sem nú er ákært fyrir, urðu í desember 2008. Nokkrum helgum áður hafði Bónusfáni verið dreginn að húni á Alþingishúsinu og í kjölfarið var einn mótmælenda handtekinn í Bankastrætinu til að ljúka afplánun dóms vegna annarra mótmæla. Sú handtaka varð til þess að hundruð mótmælenda, m.a. Álfheiður Ingadóttir, þá þingmaður, nú ráðherra, reyndu að brjóast inn í lögreglustöðina við Hlemm og frelsa atvinnumótmælandann.

Hverju var verið að mótmæla á Austurvelli? Í fyrstu var það bankakrísan, svo voru það auðmennirnir, eftir það var það ráðaleysi ráðamanna. Það varð hrun en ekkert gerðist hjá ríkisstjórninni, fannst fólki. Það datt allt í dúnalogn í kringum jólin. Í janúar dró til tíðinda þegar Alþingi kom saman og fyrsta mál á dagsrká (að því að mig minnir) var um það hvort selja ætti vín í matvöruverslunum. Þá braust út ný bylting og það er hún sem hefur fengið heitið Búsáhaldabyltingin. Út á hvað gekk hún? Jú, koma ríkisstjórn sjálfstæðismanna og Samfylkingar frá. Það gekk eftir sunnudaginn 25. febrúar.

Ný stjórn Samfylkingar og Vinstri grænna tók við völdum 1. febrúar 2009. Það hafði aldrei áður gerst á Íslandi að langvinn mótmæli á Austurvelli þar sem kveikt var í bálköstum, eggjum kastað, rúður brotnar í Alþingishúsinu og ruðst þar inn af afli, kæmi ríkisstjórn frá. Þetta var söguleg stund.

Sitt sýnist hverjum með þessa ákæru. En ég vona að hún verði ekki til þess að hvetja ungt fólk til að sýna Alþingi vanvirðingu. Það er mikil kvika í þessu máli sem augljóslega getur endað með gosi. Það er stundum stutt á milli þess að vera skúrkur eða hetja.

Jón G. Hauksson
jgh@heimur.is


 





© Allur rettur askilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. Borgartúni 23 105 Reykjavik S. 512 7575 Fax. 561 8646 heimur@heimur.is