leita

ELDRI PISTLAR

Að hræða og græða. Núna eru forsíður Moggans aftur farnar að bera keim af græðgi – og einmitt þeirri græðgi sem blaðið gagnrýnir svo oft í greinum, leiðurum og pistlum. Skyndilega er skollið á slíkt svartnætti á markaði hlutabréfa að venjulegt fólk, sem á engin hlutabréf, er hætt að

Ég fór í fjallgöngu á þriðjudaginn var, fyrir viku síðan og varla búinn að jafna mig enn. Það spilar að vísu aðeins inn í að ég er búinn að ganga á annað fjall í millitíðinni, en samt hélt ég að gangan síðasta þriðjudag yrði mín síðasta. Hún

Framsókn tapaði kosningunum í Reykjavík og fær helminginn af öllum nefndum. Framsókn hefur ekki nægilega marga menn á þingi til þess að manna ráðherrastóla og fær samt viðbótarráðherra. Þetta er ekki í lagi. Öll þjóðin fylgdist með fjáraustri Framsóknarmanna í kosningunum í vor. Enn einu sinni


PISTLAR

28/01/2010 | 21:18

Jóhönnu stillt upp við vegg. Fínt (JGH)

Jóhönnu hefur verið stillt upp við vegg. Fínt. Þó fyrr hefði verið. Ferð Steingríms J., Bjarna og Sigmundar Davíðs til Haag í Hollandi að ræða um lausn á Icesave án Jóhönnu segir allt sem segja þarf. Hún hótar ekki lengur stjórnarslitum fari Vinstri grænir ekki eftir hennar höfði í einu og öllu.

Ferðin sýnir ennfremur að það hefur molnað undan Steingrími J. innan Vinstri grænna vegna undanlátssemi hans við Jóhönnu. Honum hefur mjög líklega verið stillt upp við vegg af eigin flokksmönnum. Formennirnir þrír í ferðinni eiga það sameiginlegt að vera allir á móti aðild Íslands að Evrópusambandinu. Þess vegna hóta Bretar og Hollendingar þeim ekki í þessari ferð að umsókn Íslendinga um inngöngu í ESB verði hent í ruslakörfuna ef við ábyrgjumst ekki Icesave-reikninga einkabankans Landsbankans þegjandi og hljóðalaust. Það finnst hvergi í lögum innan ESB og Evrópska efnahagssvæðisins að ríki eigi að ábyrgjast rekstur einkabanka. Enda ef svo væri, þá stæði það skýrt og skorinort. Þar með væri líka sagt að ekki væru til einkabankar á EES-svæðinu heldur eingöngu ríkisbankar.

Aðild að ESB er eina mál Samfylkingar og hún keyrði það í gegnum þingið síðastliðið sumar í trássi við vilja kjósenda Vinstri grænna. Steingrímur J. gaf þetta eftir. Núna eru miklar líkur á að ESB-aðildin sé að einangra Samfylkinguna. Ferðin út án Jóhönnu bendir til að það sé komið opinberlega upp á yfirborðið að Hollendingar og Bretar hafa notað aðildarumsókina sem svipu á okkur í Icesave. En því hefur til þessa verið mótmælt. 

Er ný ríkisstjórn í uppsiglingu? Mjög líklega. Þannig vil ég túlka þessa ferð. Ég trúi því ekki að Bjarni  Benediktsson og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson láti Steingrím J. draga sig á asnaeyrunum enn einu sinni. Sigmundur Davíð hlýtur að minnsta kosti að vera búinn að fá nóg af stungum í bakið frá því hann studdi minnihlutastjórn VG og Samfylkingar. Hvernig má það vera að Steingrímur J. fari ekki út með samstarfsflokki sínum í ríkisstjórn til að ræða Icesave heldur stjórnarandstöðunni? Það er auðvitað hrein og klár móðgun við Samfylkinguna – jafnvel þótt látið sé í veðri vaka að þetta sé ekki nein alvöruferð með beinum samningaviðræðum heldur svona meira óformleg ferð til að skiptast á upplýsingum. Þetta eru auðvitað óformlegar viðræður – og ekkert annað. Þetta er fyrsta skref.

Þessi ferð út er Kremlarlógía. Hverjir eru á myndinni, hverjir eru hvar á henni og hverjir fá ekki að fara með út? Erum við að sjá nýja stjórn Vinstri grænna, Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks? Það er nú það. Til hvers annars að hafa Samfylkingu með fyrst búið er að stilla Jóhönnu upp við vegg og hún ekki höfð með í för eða annar fulltrúi frá Samfylkingu. Hreyfingin er ekki heldur með í för. Hreyfingin hefur verið ötul í baráttunni gegn Icesave og vel hefði mátt taka fulltrúa frá henni með í þessa skyndiferð; t.d. Þór Saari. Fjarvera hans sýnir að eitthvað meira er undir. Horfum við upp á þjóðstjórn? Tæplega. Ég hef lengi haldið því fram að tímabundin lausn upp úr skotgröfunum á Alþingi væri utanþingsstjórn en mér finnst líkur á henni hafa minnkað núna verulega.

Jóhanna Sigurðardóttir og Steingrímur J. Sigfússon hafa verið sérkennilega löt við að kynna þann málstað Íslands í Evrópu að íslenskum skattborgurum beri engin lagaleg skylda til að ábyrgjast Icesave Landsbankans. Þau hefðu átt að vera á þönum. Ég hef víst orðað það einhvers staðar að Jóhanna hefði átt að standa þrjósk fyrir utan Downingsstræti 10 í Bretlandi og banka þar á hurðina þar til Brown opnaði og hún ræddi við hann um að okkur Íslendingum bæri engin lagaleg skylda til að ábyrgjast Icesave – auk þess sem við gætum það ekki fjárhagslega. Það stefndi þjóðinni beint í gjaldþrot.

Jóhanna hefur valið aðra leið en að heimsækja ráðamenn erlendis og verja málstað Íslendinga. Hún fer ekki út fyrir hússins dyr og kyngir öllu sem nýlenduþjóðirnar Bretar og Hollendingar segja okkur. Þau Jóhanna og Steingrímur hafa verið helstu talsmenn Breta og Hollendinga hér á landi í Icesave.

Ég sá forseta Íslands í viðtali á CNBC sjónvarpsstöðinni þar sem hann er á leiðtogaráðstefnunni í Davos. Hann stóð sig vel og öfugt við Jóhönnu þá kynnti hann og varði af öllu afli málstað Íslendinga í Icesave. Hann var mjög pólitískur forseti. Það var hin kunna Maria Bartiromo, einn frægasti viðskiptafréttamaður heims, sem tók viðtalið og auðvitað barst talið að Icesave.

Forsetinn var mjög fastur fyrir og Maria Bartiromo komst ekkert áleiðis með hann. Hann sagði að almenningi á Íslandi bæri engin skylda, samkvæmt lögum Evrópusambandsins, til að taka á sig ábyrgð á illa reknum einkabanka, Landsbankanum, og útibúum hans í Bretlandi og Hollandi. Hann skaut föstum skotum á Alþjóðagjaldeyrissjóðinn og sagði okkur ekki vanta fleiri lán frá honum, ef hann vildi ekki lána okkur frekar, og kominn væri tími til að sjóðurinn breytti um vinnubrögð. Hann sagði að innstæðutryggingakerfið, sem Evrópusambandið hefði komið á með reglugerð, hefði vakið upp sviknar væntingar og allir væru sammála um að kerfið væri meingallað. Hann sagði að fall krónunnar hjálpaði íslenskum útflutningsatvinnugreinum og væri stór liður í endurreisn atvinnulífsins. Ég hugsaði með mér eftir þetta viðtal; hvers vegna hafa Jóhanna og Steingrímur J. ekki talað á þessum nótum frá upphafi.

Er ný ríkisstjórn í burðarliðnum? Mjög líklega. Ekki fer milli mála að Jóhönnu hefur verið stillt upp við vegg. Vinstri grænir skilja samstarfsflokk sinn eftir heima og fara út með stjórnarandstöðunni. Samfylkingin er skilin eftir heima. Það er hægt að móðgast yfir minna en því í hjónabandi.

Jón G. Hauksson
jgh@heimur.is





© Allur rettur askilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. Borgartúni 23 105 Reykjavik S. 512 7575 Fax. 561 8646 heimur@heimur.is