leita

ELDRI PISTLAR

01. febrúar | Af strandstað? (BJ)
Ný ríkisstjórn framsóknar, VG og Samfylkingar hefur nú litið dagsins ljós. Hún lendir á hlaupum - harðahlaupum frá fyrri baráttumálum flokkanna þriggja sem að henni standa. Samt er alveg hægt að viðurkenna það að hún er um margt einstök. Gott væri ef henni tækist að koma mörgu góðu til

20. janúar | Land gleðinnar (BJ)
Ríkisstjórnin hefur komið tveimur mikilvægum verkefnum sínum í höfn á liðinni viku. Kárahnjúkavirkjun var samþykkt af Alcoa og leifar Sambandsins fengu þýskan banka í lið með sér til þess að kaupa Búnaðarbankann. Spurningin er hvort þetta hefur nokkuð að segja varðandi vinsældir stjórnarinnar. Ingibjörg Sólrún studdi ábyrgð borgarinnar á

Á þessum árstíma á að vera kalt í Prag. Þegar desember nálgast geta menn búist við að ösla snjó í miðborginni og fimbulkuldinn að hertaka Mið-Evrópu. Þess vegna var ég ánægður með helgina þegar ég gat gengið þurrum fótum með fráhnepptan frakka um alla borgina. Markmiðið var að slaka


PISTLAR

11/08/2008 | 21:34

Ólöf Pétursdóttir (d. 2008)

Sumir atburðir verða til þess að lífssýn manns gjörbreytist. Öll viljum við sannarlega frekar að lánið leiki við okkur en að lenda í óhöppum. En sá sem lendir í mótlæti og lætur ekki bugast heldur breytir baráttu sem flestum sýnist vonlaus í spennandi leik hefur áhrif á alla sem fylgjast með.

Ég hef þekkt Ólöfu Pétursdóttur frænku mína frá því að ég var barn en kynntist henni ekki vel fyrr en fyrir rúmum áratug. Síðan hafa Ólöf og Friðrik verið í hópi bestu vina okkar hjónanna. Við eigum margar góðar minningar frá þessum tíma.

Einhvern tíma ræddum við að það væri alls ekki sjálfgefið að fullorðin frændsystkin héldu góðu sambandi. Þó að frændsemin héldist alltaf gæti vináttan bara þroskast með því að rækta hana. Það var auðvelt að rækta vináttu við Ólöfu og Friðrik. Þau áttu vel saman og voru skemmtileg hjón þó að þau væru ekki sérlega lík að upplagi. Hún hæg og fremur hlédræg, hann framhleypinn og uppátækjasamur.

Ólöf lenti haustið 2006 í slysi sem var svo hörmulegt að flestir jarðbundnir menn hefðu lagt árar í bát. Þá skildi ég hve heppin Ólöf var að eiga fjölskyldu, eiginmann, dætur og systur, sem eru fjarri því að vera venjuleg. Með raunsæisfólk í fjölskyldunni hefði slys Ólafar orðið öllum óbærilegt. En Friðrik, Guðrún mágkona hans og dæturnar gáfust aldrei upp. Þar sem aðrir sáu vegg sáu þau glufu. Þar sem aðrir sáu lamaðan líkama sáu þau fingur með tilfinningu. Í þeirra huga var aldrei spurning um það hvort Ólöf kæmi heim aftur, aðeins hvenær.

Ólöf sjálf var þeim líka hvatning. Eftir að hún fékk málið aftur var hún langoftast glöð. Enginn hefði láð henni að sökkva ofan í þunglyndi. Þess í stað tók hún fullan þátt í baráttunni með þeirri orku sem hún hafði. Þegar þau hjón komu í brúðkaup dóttur okkar síðastliðið sumar vakti Ólöf athygli allra þar sem hún geislaði af gleði og glæsileik.

Eftir slysið hefur mörgum eflaust komið í hug hvort það væri ekki best að fólk sem komið væri í þessa stöðu fengi að deyja. Þetta væri ekkert líf.

Þannig var það hins vegar ekki. Ólöf sýndi að til er margs konar líf og hamingjan felst í því að spila vel úr því sem maður hefur á hendi. Með baráttu sinni hafa Ólöf og fjölskylda hennar sýnt okkur öllum hve langt er hægt að ná með því að gefast aldrei upp.

Við hjónin vottum Friðriki, Mörtu Maríu og Ingibjörgu og systrum Ólafar samúð á þessari erfiðu stundu. Þau hafa kennt okkur að lífið heldur áfram.

Benedikt Jóhannesson.





© Allur rettur askilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. Borgartúni 23 105 Reykjavik S. 512 7575 Fax. 561 8646 heimur@heimur.is