Eitt frægasta orðið í orðabók viðskiptalífsins eftir hrun var forsendu- brestur. Átt var við brostnar forsendur hjá þeim sem tóku lán í íslenskum krónum en sem bundin voru í erlendri mynt. Í sumar mun Hæstiréttur dæma um það hvort þessi lán hafi verið ólögleg líkt og Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi.
Þegar landsliðið keppti úrslitaleikinn við Frakka um ólympíugullið var dauft yfir liðsmönnum. Þeir voru ekki í stuði. Líklega hugsuðu þeir of mikið um gullið og of lítið um leikinn. Þulir sem lýstu leiknum klifuðu hins vegar á sömu klisjunni: „Það vantar geðveikina í liðið.“
Geðveiki er sjúkdómur sem
Ég veit að margir hafa velt þessu fyrir sér árum saman en nú held ég að skýringin sé komin. Gunnar Gunnarsson fékk ekki Nóbelinn vegna þess að hann var ekki kommi. Þetta kom rækilega fram í fyrra. Samkvæmt fréttum í haust telur höfundur ævisögu Davíðs Stefánssonar að mönnum hafi
Það er af nógu að taka til þess að skrifa um. Einhver tók eftir því að ég hef ekki skrifað neitt markvert á vefinn í marga mánuði. „Hvers vegna ekki? Ertu að senda út einhver skilaboð?“ spurði hann.
Ég hugsaði mig lengi um og sagði að skýringin væri þvert á móti sú að ég væri ekki að senda út nein skilaboð.
„En hefurðu ekki verið að gera neitt í sumar?“
Mig langaði til þess að segja að ég hefði haft svo mikið að gera, en þá hefði ég verið kominn í þann leik að ég væri alltaf þvert á það sem ég væri spurður um. Ekki það að ég uni mér ekki vel í slíkum leik. Er reyndar mjög oft í honum.
Frétt sumarsins fannst mér þessi sem fylgir hér á eftir:
„Það var frekar epískt að selja Emmu Watson bíómiða," segir Hildur Ólafsdóttir afgreiðslustúlka í Háskólabíó sem afgreiddi stórstjörnuna þegar hún kom að horfa á kvikmyndina To Rome with Love klukkan hálf sex í dag.
„Mér brá dálítið mikið," segir Hildur sem seldi Emmu þrjá bíó miða. Emma var í fylgd tveggja kvenna en önnur þeirra var roskin og því vaknaði grunur hjá starfsfólki kvikmyndahússins að um móður leikkonunnar væri að ræða.
Leikkonan kunni sig að sögn Hildar og hagaði sér með prýði. „Hún var bara rosalega indæl," segir hún.
Það gerist ekki margt í lífi Hildar, hugsaði ég. Ekki það að ég hafi hitt Emmu Watson, hvað þá að hún hafi keypt af mér bíómiða. Ég hef ekki einu sinni hitt Hildi. Og ég veit ekki hver Emma er.
Spurning: Hvað þýðir orðið epískur sem heyrist nú oft og tíðum og hvaðan er það upprunnið?
Þessa spyr Páll Sigurður Björnsson á vef Stofnunar Árna Magnússonar sem svarar að bragði:
Orðið epískur merkir ‛sögulegur, með sögulegu efni’ og er notað um ljóð og annan skáldskap. Það er þekkt í málinu frá því á fyrri hluta 19. aldar og er fengið að láni úr dönsku episk í sömu merkingu. Orðið er ættað úr grísku epikós ‛sögulegur’ sem dregið er af nafnorðinu épos ‛hetjukvæði, söguljóð’.
Hildur er vel lesin í skáldskap. Ætli það sé ekki mjög óvenjulegt að fólk sé indælt þegar það kaupir miða í Háskólabíói? Mamma Emmu hefur örugglega haft þessi áhrif á hana.
Ég mun eyða afmælisdeginum í faðmi fjölskyldunnar,“ segir Yrsa Þöll Gylfadóttir rithöfundur sem í dag fagnar þrítugsafmæli sínu en í gær hélt hún upp á afmælið með vinum og skáluðu þau eftirminnilega fyrir deginum á miðnætti.
Í tilefni dagsins ætlar fjölskylda Yrsu Þallar að koma saman á heimili móður hennar og snæða saman kvöldverð. Spurð hvort eiginmaður hennar, Gunnar Theodór Eggertsson, muni gera eitthvað sérstakt og óvænt með henni í tilefni afmælisins segir hún: „Ég vænti þess að eiginmaður minn komi mér skemmtilega á óvart með morgunmat í rúmið og fallegri gjöf.“
Ég fór að velta því fyrir mér hvort það sé hægt að vænta þess að einhver komi manni á óvart. Hvað segir Yrsa Þöll við Gunnar Theodór þegar hann færir henni morgunmatinn?
Kannski: „Ég vissi, að þú myndir koma mér á óvart.“
Þá hefði Yrsa Þöll orðið heldur betur hissa ef Gunnar Theodór hefði ekki munað eftir afmælinu. Hann hefði komið á óvart, en kannski ekki skemmtilega.
Fyrir tveimur árum kom þessi frétt á Ferðapressunni:
Yrsa, sem er 28 ára gömul, stundar nú frönskunám við Sorbonne háskóla en gaf á dögunum út sína fyrstu skáldsögu, Tregðulögmálið. Þar segir frá háskólanemanum Úlfhildi sem, eins og stendur aftan á bókarkápunni: „með framhleypinni og óforskammaðri gráglettni leiðir lesendur með sér í vitundarvakningu sína um tilgang, merkingu og gildi samfélagsins, námsins, atvinnulífsins, ástarinnar, samskipta kynjanna og kynslóðanna.“
Svona getur margt skemmtilegt skeð meðan maður er allt annað að hugsa. Fólk sem maður veit ekki að er til kemur manni á óvart með epískum verkum. Maður fer að búast við þessu.