
ELDRI PISTLAR
PISTLAR
Meðan á landsfundi Sjálfstæðisflokks stóð töluðu margir utanflokksmenn um að stefna flokksins í Evrópumálum bæri keim af harðlínu. Það var augljóst að þeir höfðu ekki verið á fundinum. Vissulega eru margir flokksmenn ósveigjanlegir í sinni afstöðu og sumir töldu eflaust best að Evrópusinnarnir færu úr flokknum. Á fundinum kom þó í ljós að í þetta sinn var þetta minnihluti. Síðast var það samþykkt með afgerandi meirihluta að slíta viðræðunum. Sumir sögðu að tillögunni hefði verið laumað seint á dagskrá og margir hefðu verið farnir. Það var að vísu rétt, en meirihlutinn var svo stór að ekki þurfti að efast um vilja meirihluta landsfundarfulltrúa.
NÝLEGIR PISTLAR