
ELDRI PISTLAR
PISTLAR
Óli heitinn í Olís notaði einhvern tíma orðið bensíntittur í viðtali. Það var þegar hann fór af skrifstofunni og gerðist starfsmaður á plani; var á dælunni í einn dag. Þá sagðist hann vera orðinn bensíntittur. Núna er Oddný G. Harðardóttir fjármálaráðherra komin á dæluna og malar þar gull. Hún er bensíntittur samtímans. Malar gull. Þetta er eins og að vinna gullpottinn hjá henni þegar krónurnar dælast í ríkiskassann.
Við bíleigendur eru raunar allir bensíntittir í vinnu fyrir hið opinbera. Þegar við tökum bensín leitum við í sjálfsafgreiðsluna og dælum bæði á tankinn og í ríkiskassann.
Verð á bensíni hækkaði í dag í 264 krónur lítrinn af dísil og í 258 krónur bensínlítrinn. Ekki heyrði ég samt í neinum bílflautum í dag. Við Íslendingar látum allar bensínhækkanir yfir okkur ganga. Kvörtum ekki, tuðum heima hjá okkur, og ökum ef til vill minna.
Ríkið tekur 123 krónur af 258 króna verði bensínlítrans; næstum helminginn. Ríkið fær núna 53 krónum meira í skatta af hverjum lítra af bensíni en það fékk fyrir fjórum árum áður en kreppan skall á.
Ríkið tekur 240 þúsund í skatta á ári af meðafjölskyldu sem kaupir bensín. Það er yfir 100 þúsund krónum meira en hún gerði fyrir fjórum árum þegar hún tók 140 þúsund í sinn hlut.
Í millitíðinni skall ekki á nema ein kreppa eða svo. Að vísu harðasta kreppa lýðveldisins. Hverju breytir það?
Við bensíntittir dælum af krafti fé í ríkiskassann fyrir fjármálaráðherra. Við erum eins og hamstur í hjóli, dælum og dælum.
Ekki má heyra minnst á að lækka verðið. Að vísu leggja sjálfstæðismenn til að lítrinn lækki niður í 200 krónur og ríkið græði ekki eins mikið á bensínhækkunum.
Sú lækkun kemst örugglega ekki í gegnum þingið. Það er sagt að verðið sé bara eins og í Noregi þar sem laun eru meira en tvöfalt hærri en á Íslandi. Það tekur Norðmanninn meira en helmingi styttri tíma að vinna fyrir bensínlítranum.
FÍB áætlar að kostnaður hverrar fjölskyldu vegna bensínkaupa sé um 500 þúsund krónur á ári og þar af sé hlutur hins opinbera (skatttekjur) yfir 240 þúsund krónur.
Svona er hækkunin.
Bensín 95 oktan
Verð á lítra Hlutur ríkisins
Febrúar 2008: 138 kr. 70 kr.
Febrúar 2009: 144 kr. 76 kr.
Febrúar 2010: 200 kr. 104 kr.
Febrúar 2011: 216 kr. 110 kr.
Febrúar 2012: 258 kr. 123 kr.
Dísil
Verð á lítra Hlutur ríkisins
Febrúar 2008: 142 kr. 70 kr.
Febrúar 2009: 163 kr. 79 kr.
Febrúar 2010: 198 kr. 95 kr.
Febrúar 2011: 219 kr. 105 kr.
Febrúar 2012: 264 kr. 120 kr.
Verð á bensíni stefnir í 300 krónur lítrinn. Það verða ekki margar vikur þangað til að sá múr fellur.
Í morgun var ég spurður að því af ágætum samstarfsmanni mínum hvort ég væri byrjaður að safna fyrir berjamónum í haust.
Ég svaraði því neitandi en hóf söfnunina þegar í stað.
Jón G. Hauksson
jgh@heimur.is
NÝLEGIR PISTLAR