
Blue Valentine er ein af mörgum gæðakvikmyndum sem fá fyrst tækifæri á Sundance kvikmyndahátíðinn, þar sem kaupin á eyrinni gerast með ódýrar kvikmyndir sem eru áháðar stóru kvikmyndafyrirtækjunum. Sumar hafa heppnina með sér og fá dreifingaraðila, en flestar verða að keyra á önnur mið.
Það var sjálfur Harvey Weinstein sem sá eitthvað í Blue Valentine sem mundi höfða til fólks og keypti dreifingarréttinn og í þetta skiptið hafði hann rétt fyrir sér, Blue Valentine er einstaklega áhrifamikil kvikmynd um samband karls og konu sem er í dauðateygjunum.
Leikstjórinn Derek Cianfrance tók myndina upp á löngum tíma fyrst og fremst vegna peningaleysis og varð að stíla upp á að leikararnir Michelle Williams og Ryan Gosling væru á lausu. Þolinmæði hans borgaði sig, Blue Valentine hefur verið vel sótt og Michele Williams fékk verðskuldaða óskarstilnefningu fyrir leik sinn.
Líkamleg, en fyrst og fremst andleg átök er þemað í Blue Valentine sem gerist á nokkrum árum og er farið fram og aftur í tíma og stundum er maður ekki alveg með á hreinu frá hvaða tímabili er verið að sýna. Við kynnumst Dean (Ryan Gosling) og Cindy (Michelle Williams) á fyrstu árum sambands þeirra þegar allt leikur í lyndi og þau eru hamingjusöm með nýfætt barn, en meiri tími fer í lokaátökin milli þeirra þegar ljóst er öllum að ekkert getur haldið þeim lengur saman.
Blue Valentine getur stundum verið óþægileg og áreitin en er alltaf áhugaverð og þar kemur til sterkur leikur aðalleikaranna, Goslings og Williams, sem með krafti sínum og skilning á persónunum eiga sinn þátt í að myndin lifir í minningunni.
Kvikmyndatakan er stundum nokkuð ruglingsleg og upphaf myndarinnar fannst mér ekki lofa góðu, það þurfti tíma til að venjast nærmyndatökum sem myndin byggir á og meðtaka öll smáatriðin sem eru nauðsynleg til að fá skilning á ástandi aðalpersónanna, en eftir því sem líður á myndina verður hún sterkari og þó við séum í vafa hvaða leiðir Dean og Cindy munu fara í framtíðinni þá skilur myndin mikið eftir sig.“
Leikstjóri: Derek Cianfrance. Handrit: Derek Cianfrance, Joey Curtis and Cami Delavigne. Kvikmyndataka: Andrij Parekh. Leikarar: Michelle Williams, Ryan Gosling og John Doman. 112 mín.
Hilmar Karlsson