leita

  
 
12. júlí 2012| Intouchables

12. júní 2012| Prometheus

14. mars 2012| Svartur á leik


 

Eldfjall

Rúnar Rúnarsson er sá kvikmyndagerðarmaður af yngstu kynslóð sem mestar væntingar hafa verið bundnar við og ekki af ósekju. Stuttmyndir hans, Smáfuglar, Anna og Síðasti bærinn í dalnum hafa farið sigurförum heiminn og hafa verðskuldað verið verðlaunaðar í bak og fyrir og það þarf því engan að undra að beðið var með eftirvæntingu eftir Eldfjalli, fyrstu kvikmynd hans í fullri lengd. Og Rúnar veldur ekki vonbrigðum, Eldfjall er áhrifamikil, dramatísk kvikmynd þar sem kafað er í sálarlíf manns sem kominn er á eftirlaunaaldur, manns sem þarf  ekki aðeins að breyta lífsstíl sínum heldur takast á við alvarleg veikindi eiginkonu sinnar.

eldfjall

4star

Aðalpersónan, Hannes, er ekki beint geðslegur maður í upphafi, hörkutól sem hefur einangrað sig frá mannlífinu, stundaði sína vinnu og lét eiginkonuna, Önnu, um allt hitt. Börn hans tvö þola hann ekki og telja að hann hafi, sjálfsagt réttilega, kúgað móður þeirra. Óviljandi er hann settur á eftirlaun og þarf að eyða deginum í ekki neitt. Finnur þó löngum til að gera upp bátgarm sem hann á. Þegar Anna fær alvarlegt heilablóðfall ákveður Hannes að stunda hana heima, gegn vilja barna sinna. Þar með upphefst tímabil í lífi hans sem á eftir að breyta honum mikið.

Rúnar byggir kvikmynd sína mikið á hægum nærtökum þar sem fyrst og fremst er verið að sýna svipbrigði Hannesar og hans innri mann. Leikur Theodórs Júlíussonar er slíkt afrek að myndin þolir nærtökurnar þó atburðarásin sé hæg. Með einu svipbrigði eða höfuðhreyfingu má sjá kvöl hans og þá sálarlegu baráttu sem hann stendur í. Vel skrifuð persóna og leikur í hæsta gæðaflokki sem gerir Eldfjall að stórum hluta að þeirri áhrifamiklu upplifun sem hún er. Sagan sjálf er kunnugleg og sjálfsagt hægt að benda á nokkrar kvikmyndir sem taka samskonar efni föstum tökum, en úrvinnslan er Rúnari til sóma og þó ég hafi á stundum þótt Eldfjall vera full langdregin þá er ekki hægt að sjá hvernig betur hefði mátt gera til að ná fram þeim sterku áhrifum sem myndin skilar til áhorfandans.

Nafnið Eldfjall hefur aðeins verið að veltast í huga mér. Í upphafi sjáum við svipmyndir frá eldgosinu í Vestmannaeyjum sem eru æskustöðvar Hannesar og var hann einn þeirra mörgu sem flutti til lands í þeim hamförum. Kemur eldfjall ekki síðan meira við sögu. Hvort verið er að vísa til áhrifa frá æskustöðvunum með nafninu og um leið að eldgosið hafi mótað líf Hannesar eftir að hann flutti til lands er ekki ljóst, alla vega á ég í nokkrum vandræðum með að meðtaka nafnið.
 
Leikstjórn og handrit: Rúnar Rúnarsson. Kvikmyndataka: Sophia Olsson. Tónlist: Kjartan Sveinsson. Leikarar: Theodór Júlíusson, Margrét Helga Jóhannsdóttir, Elma Lísa Gunnarsdóttir, Þorsteinn Bachmann. 95 mín.

Hilmar Karlsson

Share

   
Stundum finnst mér eins og slái út í fyrir mér. Það gerðist í morgun. Í dag er hvítasunnan og auðvitað held ég í það af minni barnstrú að taka hvíldardaginn hátíðlegan og sérstaklega hvítasunnudaginn. Ég reyndi að muna hvers vegna við höldum upp á hvítasunnuna og fann ekki



18. janúar 2013| Hægt á trúlofuninni (JGH)






© Allur rettur askilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. Borgartúni 23 105 Reykjavik S. 512 7575 Fax. 561 8646 heimur@heimur.is