leita









Í nóvember 1979 réðst stór hópur Írana á sendiráð Bandaríkjanna í Tehran og tók 52 sendiráðsstarfsmenn til fanga og heimtuðu að Bandaríkin skiluðu fyrrum keisara Írans í hendurnar á Ayatollah Khomeini, sem hafði komist til valda í blóðugri byltingu. Í kjölfarið varð eitt mesta hernaðarklúður bandaríska hersins nokkrum mánuðum síðar







Krumla bankanna er stór og fyrirferðarmikil. Hún hefur núna læst sig í um 50 stór og þekkt fyrirtæki sem bankarnir hafa yfirtekið eftir bankahrunið, nauðugir viljugir, og hafa öll tögl og hagldir í þeim sem stærstu kröfuhafar. Stóra málið er hvenær og hvernig þeir ætla að losa sig við







Afsökunarbeiðni (BJ)
forsida_2012Að undanförnu hef ég átt skoðanaskipti við hinn virta og óháða fræðimann Stefán Ólafsson prófessor. Það hefur verið skemmtileg upplifun að sjá þennan hógværa fræðaþul leiðrétta Hagstofuna, jafnframt því sem hann hefur hvatt til þess að Frjáls verslun safni meiri gögnum til birtingar í tekjublaði sínu.
 
Stefán hefur nú hvatt til þess að ég biðjist afsökunar á pistli sem ég skrifaði í gær. Það er mér ljúft, en eftir nákvæma yfirferð er ég ekki viss um hvaða setning í pistlinum það er sem Stefán hnýtur um. Af því að mér gefst ekki færi á að skrifa meira um þetta mál á næstunni verður afsökunarbeiðnin opin. Pistill minn sem hér um ræðir var 14 málsgreinar (að frátalinni tilvitnun í grein Stefáns sem ég reikna með að þurfa ekki að biðjast afsökunar á). Því væri tilvalið að senda mér númer þeirra setningar þar sem ég fór með rangt mál, þó að ekki væri nema lesendum til glöggvunar.
 
Margir hafa skrifað mér vegna þessara málefnalegu skoðanaskipta og haft orð á því, hve gott sé að hafa í háskólanum óflokksbundinn prófessor, sem setji fram sitt mál með þeim kurteislega og yfirvegaða hætti sem raun ber vitni. Ekki er að efa að marga fýsir að fá óháðan og hlutlausan fræðimann í sínar raðir. Ég sé til dæmis að flokkssystkin mín á Vefþjóðviljanum eru þegar farin að bera víurnar í Stefán.
 
Nú er komið að lokum þessarar rökræðu og gott að þakka fyrir heiðarlega og íþróttamannslega framkomu.
 
 
PS Farinn á húkkaraballið.
 
 
01. ágúst 2012| Myndin sem breyttist (BJ)
 
 
Share















   
Leikrit í einum þætti sem endurtekinn er þangað til allir fá leið á honum. Konan situr í lopapeysu við gluggann og horfir út. Eiginmaðurinn horfir í spegil og heldur hægri hendinni við bringspalir. Laumar henni öðru hvoru undir jakkaboðunginn og kinkar ánægður kolli. D: Óli, ég skal flytja







Business Week
Fortune
The Economist
Forbes
Børsen
Berlingske Business




© Allur rettur askilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. Borgartúni 23 105 Reykjavik S. 512 7575 Fax. 561 8646 heimur@heimur.is