
Út er komin hjá Heimi bókin Enn betra golf eftir Arnar Má Ólafsson landsliðsþjálfara í golfi, og Úlfar Jónsson, margfaldan Íslandsmeistara og PGA golfkennara. Þeir kappkosta að útskýra tæknina og þá þætti leiksins sem skipta mestu máli, svo sem hugarfar, leikskipulag og leiðir til að nýta æfingatímann á sem skemmtilegastan og árangursríkastan máta.
Markmið kylfinga eru mismunandi, en fyrir flesta er aðalatriðið að njóta sín í góðum félagsskap á fallegum golfvelli. Vissulega getur það skipt höfuðmáli hvernig okkur tekst til í baráttunni við að koma boltanum í holuna, hversu jákvæð upplifunin verður. Fáar íþróttir krefjast jafn mikils samspils hugar og handar, en leikurinn að læra golf verður skemmtilegri þegar tækniatriðum og jákvæðu hugarfari er blandað saman. Enn betra golf hjálpar lesandanum að tileinka sér réttar aðferðir og að auka ánægjuna á golfvellinum.
Páll Kjartansson hefur tekið fjölmargar ljósmyndir fyrir bókina. Þær auðvelda lesandanum að tileinka sér efni hennar.
Bókin kostar 3.490 krónur og fæst í helstu bókaverslunum, helstu golfbúðum, Hagkaupum og Fjarðarkaupum (frá og með föstudegi 7. des).